Símavinir Rauðakrossins

Viltu láta gott af þér leiða?

 Maðurinn er félagsvera sem þarfnast samskipta við annað fólk.

Einmanaleiki er tilfinning sem kemur fram þegar skortur er á félagslegum tenglsum.

- Gunnar Dal

 Vegna ýmissa ástæðna þá hafa félagsleg tengsl fólks minnkað og einmanaleiki í samfélaginu aukist ár frá ári. Það var árið 2016 sem Rauði krossinn hrinnti af stað verkefninu Símavinir í þeim tilgangi að minnka einmanaleika og  til að efla félagsleg tengsl þeirra sem þess þurfa.  Verkefnið snýst um að sjálfboðaliðar Rauða krossins hringja til þeirra sem þess óska og er vinaspjall í allt að hálftíma í senn, einu sinni eða tvisvar í viku á tíma sem báðum aðilum hentar.

 Stutt símaspjall getur rofið einmanaleika og fært gleði og vellíðan inn í daginn.

 Þar sem sími er notaður þá eru fjarlægðir ekki hindrun og því auðvelt að eignast vini allt í kringum landið. Sjálfboðaliði á Ísafirði getur t.d. hringt í símavin á Egilsstöðum. Símavinir Rauða krossins er verkefni sem hentar því öllum sem langar til að eiga skemmtilega stund án fyrirhafnar, einu sinni til tvisvar í viku.

 Ef þú átt lausar 30 – 60 mínútur á viku og langar að láta gott af þér leiða, þá gætir þú gerst sjálfboðaliði og lagt Símavinum Rauða krossins lið.

Vertu með og taktu þátt í að minnka einmannaleikann um land allt 

Upplýsingar og skráningareyðublað er að finna á heimasíðu Rauða krossins.

https://www.raudikrossinn.is/hvad-gerum-vid/heimsoknarvinir/simavinir/

SÍMAVINIR - Kynningarfundur á Zoom – Þriðjudaginn 7. desember 2021 – Kl. 14:00

Rauði krossinn býður upp á kynningarfund á ZOOM (fjarfund) fyrir þá sem hafa áhuga að fá meiri upplýsingar. Hafdís Rún, verkefnisstjóri Símavina, kynnir verkefnið og fer yfir mikilvæga punkta eins og hvernig á að beita virkri hlustun ásamt fleiru.

Ekki þarf að skrá sig á fundinn, heldur er nóg að smella á tengilinn ,,Upplýsingafundur á Zoom“ hér fyrir neðan, þriðjudaginn 7. desember – kl. 14:00:

Upplýsingarfundur á Zoom

 

Fréttir og myndband:

Símavinir -  Stutt kynningarmyndband: https://www.youtube.com/watch?v=Ov0XDTSxpvo

Frétt á heimasíðu LEB: https://www.leb.is/viltu-lata-gott-af-ther-leida/

Frétt með myndbankdi á Facebooksíðu LEB: https://www.facebook.com/landssambandeldriborgara/videos/1296717844086733

 

Með von um góðar undirtektir og fyrirfram þökk