Hagur og líðan aldraðra

Opinn kynningarfundur á niðurstöðum um hagi og líðan aldraðra á Íslandi 2020

 

Félagsmálaráðuneytið, velferðarsvið Reykjavíkurborgar og LEB – Landssamband eldri borgara fengu Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands til að gera fyrir sig könnun á högum og líðan aldraðra á Íslandi 2020.

Rafræn kynning á niðurstöðum könnunarinnar verður haldin 7.  apríl nk. kl. 13. Helgi Guðmundsson verkefnastjóri hjá Félagsvísindastofnun mun kynna niðurstöðurnar.

Vegna Covid-19 faraldursins verður fundurinn haldinn á Teams. Ekki þarf að vera með Teams uppsett á tölvu til að geta horft á fundinn. Smelltu hér til að tengjast fundinum. Ekki er þörf á skráningu.