Pálínukaffi 13. febrúar

PÁLÍNUKAFFI Í BIRTU MÁNUDAGINN 13. FEBRÚAR KL. 10:30.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Jódís Skúladóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmenn, mæta á svæðið ásamt aðstoðarmanni Guðmundar Inga.
Hann segir okkur frá verkefninu Gott að eldast og þau spjalla óformlega við okkur. Þau óskuðu eftir að koma til okkar á viðburð en ekki á formlegan fund.
Fjölmennum og tökum vel á móti góðum gestum. Munum að hafa með okkur meðlæti eins og venjan er á svona samkomum. Kaffi verður á könnum.
Stjórn EBAK.