Dansklúbbur EBAK

Dansklúbbur EBAK

Miðvikudaginn 2. mars nk. kl. 16:00-17:30 verður dansæfing á vegum klúbbsins. Ætlunin er að dansa tvisvar í mánuði fram á vor. Þeir sem vilja hafi með sér grímur.

Þau  sem hafa dansað með okkur áður hafa forgang að æfingunum. Aðrir sem hafa hug á að dansa með okkur og kynnast starfi klúbbsins þurfa að skrá sig hjá Halldóri Gunnarssyni, netfang halldorogbjorg@simnet.is, sími 690-3575. Hann gefur einnig upplýsingar ef óskað er eftir. Útvegum ekki dansfélaga. Takmarkaður fjöldi.

Dansklúbbur EBAK.