Aðalfundur EBAK

AÐALFUNDUR EBAK
Þið munið að sjálfsögðu eftir aðalfundi Félags eldri borgara á Akureyri sem verður haldinn þriðjudaginn 29. mars 2022 í Birtu, Bugðusíðu 1 og hefst kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf og kjör fulltrúa EBAK í öldungaráð Akureyrarbæjar.
Tillögur uppstillinganefndar um stjórn og nefndir liggja frammi í félagsmiðstöðvunum Birtu og Sölku, á ebak.is og í fésbókarhóp EBAK.
Reikningar félagsins, ásamt skýrslum stjórnar og nefnda liggja frammi í Birtu og Sölku.
Á fundinum verður kaffi í boði félagsins.
Stjórn Félags eldri borgara á Akureyri.