R I N G Ó

Ringó

Æfingar í Ringó-íþróttinni, fyrir 60 ára og eldri, verða á miðvikudögum kl. 10:45-12:15, í gamla íþróttahúsi MA, "Fjósinu"
Æfingar hefjast miðvikudaginn 2. febrúar.
Ringó er gúmmíhringjaleikur (4 í liði) sem fer fram á blakvelli og líkist blaki að mörgu leyti en er álagsminni.
Hentar hverskyns eldri borgurum einkar vel til heilsueflingar.
Engin skráning, bara mæta með góða skapið og íþróttaskóna og taka þátt!
Friðrik Vagn gefur frekari upplýsingar, ef óskað er, í síma 893-2519.
EBAK - heilsuefling.