Nýr tengill

Endilega fylgist með tenglum sem vísað er í á ebak.is

Í gær 8. maí 2017 var opnaður upplýsingabanki heimasíðunnar lifdununa.is. Þar er að finna góðar upplýsingar um þjónustu fyrir eldri borgara. Búið er að setja tengil á bankann á tenglalistann á ebak.is. Tengilinn finnið þið neðarlega á listanum. 

Í tenglalistanum er vísað á ýmsar heimasíður, sem tengist þjónustu við eldri borgara á einn og annan máta. Sem dæmi má nefna síðuna heilsuvera.is, sem er upplýsingagátt þar sem þeir sem eru með rafræn skilríki geta pantað tíma hjá lækni, endurnýjað lyf o.s.frv. 

Hallgr. G.