Gönguklúbbur EBAK - Laugalandsskógur fimmtudaginn 13. september

Stefnt er að því að ganga í Laugalandsskógi á Þelamörk fimmtudaginn 13. september. Gönguleiðin er um 4.5 km. Gengið verður frá neðra bílastæðinu. Fyrsti hlutinn er nokkuð brattur en þeir sem það kjósa geta byrjað á efra bílastæðinu og losnað við brattann. Göngufærið er að mestu malar og moldarstígar. Mætum í Bugðusíðu kl. 10.00.