Gönguklúbbur EBAK.

Fimmtudaginn 9. júlí verður farið út í Hrísey. Mæting í Bugðusíðu 1 kl. 8.30. Þar safnast fólk saman í bíla og leggur af stað 10-15 mínútum síðar. Ferja kl. 9.30.
Munum að hafa með okkur peninga í ferjuna og veitingar í Verbúðinni 66 eftir gönguna.
Genginn verður um 6 km. langur hringur um eyjuna, mishæðótt, brött brekka niður að Hvatastöðum og löng brekka upp þvert yfir eyjuna. Munum að vera í góðum gönguskóm, klæðum okkur eftir veðri. Gott að hafa stafi, ef fólk vill. Höfum öll með okkur nesti, því súpan verður ekki fyrr en um 13. Miðum við að taka ferjuna heim kl. 15.
Venjulega eru vikulegar göngur klúbbsins aðeins auglýstar í fésbókarhópi EBAK. Þar birtast líka myndir úr göngunni. Ef þið eruð ekki þegar í þeim  hópi, endilega óskið eftir að gerast meðlimir.
Hallgrímur.