Gönguklúbbur EBAK

Gönguklúbbur EBAK.
Síðasta skipulagða gönguferð ársins verður um Eyrina á Akureyri fimmtudaginn 27. september. Mæting við Bugðusíðu 1 kl. 10. Eftir gönguna er áætlað að kveðja gott göngusumar með því að fara á kaffihús, ef áhugi er fyrir hendi. Auðvitað höldum við öll áfram að ganga í allan vetur og verðum í góðri æfingu þegar gönguklúbbsgöngurnar byrja aftur næsta sumar.