Dansklúbbur EBAK

Hugmynd að stofnun dansklúbbsins kviknaði á grunn dansnámskeiðum hjá Önnu Breiðfjörð 2018. Hann var stofnaður 20. febrúar 2019. Félagarnir koma saman tvisvar í mánuði yfir veturinn til að æfa þá dansa sem þeir hafa lært og til að læra meira. Anna kemur stundum á dansæfingar til að rifja upp það sem hún hefur kennt áður og kenna jafnvel einn og einn nýjan dans.

Ákveðið hefur verið að fjölga í klúbbnum um að hámarki 10 pör. Þeir eldri borgarar sem hafa hug á að ganga til liðs við klúbbinn er bent á að sækja um inngöngu í netfang  halldorogbjorg@simnet.is í síðasta lagi 2. mars nk. Gefa þarf upp nafn, síma og netfang. Einnig er hægt að hringja í Halldór Gunnarsson í síma 690-3575 til að fá frekari upplýsingar.